Á bökkum Minnivallalækjar við efsta eiginlega veiðistað lækjarins Húsabreiðu stendur glæsilegt og notalegt veiðihús til afnota fyrir veiðimenn. Í húsinu eru fjögur uppbúinn tveggja manna herbergi, tvö baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og setustofa. Á pallinum bakvið hús er heitur pottur sem tilvalið er að slaka á í eftir langan dag við veiðar. Gasgrill er á staðnum til afnota sem og bakaraofn, helluborð, tveir ísskápar - annar með frystihólfi og uppþvottavél. Til að kveikja á heitum potti þarf að slá inn rofa merktum heitum potti í rafmagnstöflu inni í eldhúsi. Hitastig á pottinum ætti að vera fínt við komuna í hús og þar sem sírennsli er í pottinn þarf ekki að tæma hann við brottför. Við biðjum gesti okkar þó um að slá pottinum út aftur við brottför.
| Share |