Vegna forfalla er Minnivallalækur laus fyrstu vikuna í apríl og nú eru páskarnir óvenju snemma líka eða 2-6 apríl. Tilvalið að taka þá úr sér spennuna eftir veturinn og stangardagurinn með frábærri gistingu er á kr. 35.000. Yfirleitt eru allar 4 stangirnar seldar saman í holli en með stuttum fyrirvara má líka kaupa stakar stangir.
Má nefna að 2. apríl í fyrra veiddust 13 fiskar og voru þeir stærstu á milli 60-70 cm, ekki amalegt að byrja sumarið þannig!
Uppl. á netfang ellidason@strengir.is eða í síma 660 6890.