Á hverju ári veiðast urriðar sem eru um og yfir 10 pund!
Minnivallalækur á engan sinn líkan í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem fyrirfinnast á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Staðsetning lækjarins á yngsta landsvæði landsins gerir það að verkum að þegar vatnið kemur upp á yfirborðið undan hrauninu er hitastig þess mjög jafnt, leiðnin há og frjósemi mikil. Við þessi skilyrði er skordýralíf í blóma og sökum þess hversu hægrennandi lækurinn er hentar hann urriða feykivel.
Oft heyrum við efasemdaraddir frá erlendum veiðimönnum sem ekki trúa því að svo stórir urriðar geti leynst í svona litlum læk en menn þurfa ekki annað en velta við steini eða róta upp botninum til að skilja það hvernig urriðinn í Minnivallalæk getur náð slíkum stærðum sem raun ber vitni. Þessi einstöku skilyrði gera það líka að verkum að fiskurinn er ljónstyggur og í ákveðnum veðurskilyrðum alveg ótrúlega erfiður við að eiga. En það er einmitt ástæðan fyrir því að bestu fluguveiðimenn heims leggja leið sína í Minnivallalæk ár hvert til að reyna við þennan fallega fisk sem lætur ekki ná sér svo auðveldlega. Þegar þeir svo setja í stærsta urriða sem þeir hafa nokkurn tímann séð er ferðin og erfiðið svo sannarlega búið að borga sig.
Það er óvíða í heiminum sem veiðimenn eiga möguleika á að setja í tíu punda urriða á agnarsmáar þurrflugur í stærðum 18 og jafnvel minni. Flest árin veiðast urriðar sem eru um og yfir 10 pund og fjöldi fiska á bilinu 4-8 pund. Vorið getur oft á tíðum verið stórkostlegt og fyrstu dagana eftir opnun 1. apríl er oft hægt að fá ævintýralega veiði á straumflugur og stærri púpur. Þegar líða tekur á vorið og snemmsumars kviknar á lífríki lækjarins fyrir alvöru og hlutverk veiðimanna fer að verða erfiðara, flugurnar minnka og þurrfluguveiðin byrjar. Um mitt sumar veiða menn á pínulitlar flugur og nota örgranna tauma, skríða um bakkana og kasta á fiska sem menn sjá vel í kristaltæru vatninu. Þegar hausta tekur stækka flugur á ný og fiskur fer aftur að verða árásargjarn. Oft lenda menn í ævintýrum í haustveiðinni í læknum. Minnivallalækur er sannarlega paradís urriðaveiðimannsins.
Að gefnu tilefni er veiðimönnum bent á að hestar geta komist að bílum við lækinn og engin ábyrgð er tekin á tjóni sem þeir geta valdið. Fylgist því með bílum ykkar við veiðar!
Á bökkum Minnivallalækjar við efsta eiginlega veiðistað lækjarins, Húsabreiðu stendur glæsilegt og notalegt veiðihús til afnota fyrir veiðimenn. Í húsinu eru fjögur uppbúinn tveggja manna herbergi, tvö baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og setustofa. Á pallinum bakvið hús er heitur pottur sem tilvalið er að slaka á í eftir langan dag við veiðar. Gasgrill er á staðnum til afnota sem og bakaraofn, helluborð, tveir ísskápar – annar með frystihólfi og uppþvottavél. Á komudegi má mæta í húsið eftir kl. 14 en veiðimenn þurfa að fara úr húsi kl. 13 á brottfarardegi. Munið að þrífa og taka rusl við brottför.
Staðsetning: Minnivallalækur er í Landsveit skammt frá Hellu. Fjarlægð frá Reykjavík: 110 km.
Veiðisvæði: Minnivallalækur frá upptökum til ósa við Þjórsá. Veiðisvæðið er samtals um 7 km langt.
Tímabil: 1. apríl – 30.september.
Veiðileyfi: Seldir eru tveir eða þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis.
Daglegur veiðitími: Sveigjanlegur veiðitími 12 klst á dag en veiði hefst kl. 15 á komudegi og líkur kl. 12 á brottfarardegi.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru 4 stangir.
Verð: Stöng á dag kostar á bilinu kr.25.000 – 40.000 og innifalið í því er herbergi með uppbúnum rúmum fyrir hverja stöng.
Veiðireglur: Aðeins er leyfð fluguveiði í Minnivallalæk og skylt er að sleppa öllum fiski.
Vinsælar flugur: Black Ghost, Nobbler (yfirleitt svartur eða hvítur), Dýrbítur, Pheasant tail, Peacock, Hares ear og smáar púpur sem líkja eftir vorflugum eða mýflugum. Black Gnat, Griffiths gnat, Parachute Adams, Evrópa, Klinkhammers. Venjulega eftirlíkingar mýflugna eða vorflugna.
Veiði síðastliðin ár: Á bilinu 200-300 urriðar.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Þröstur Elliðason í s. 660 6890.
Staðsetning: Minnivallalækur er í Landsveit skammt frá Hellu.
Fjarlægð frá Reykjavík: 110 km
Akstur: Um 1 klst og 30 mín