Veislan heldur áfram í Jöklusvæðum og bara í morgun komu 35 laxar á land! Þar af voru þrír 90 cm eða stærri og við erum strax komin upp í 1.100 laxa nú þegar.
Stórlax úr Gauksstaðabreiðu á Jöklu II
Mikið er bókað en nú er ljóst allavega að ekkert yfirfall kemur næsta mánuðinn. Á vef okkar má nú sjá að við höfum opnað fyrir sölu á dögum á Jöklu II sem er efra svæðið sem tekur 6 stangir. Um er að ræða dagana 18-21 ágúst, 24-27 ágúst og einnig eftir 30 ágúst og inn í fyrstu viku september.