Nú má sjá stöðu lausra leyfa hjá Strengjum á vef okkar www.strengir.is og almennt er vel bókað af veiðimönnum sem vilja halda sínum stöngum (og hollum) en þó er ýmislegt áhugavert sem má finna ennþá af lausum leyfum.
Ef farið er yfir stöðuna nánar má sjá að júlí er vel bókaður á Jöklusvæðum en þó er hugsanlegt að eitthvað losni þar og áhugasamir eru settir á bið til að byrja með. Fögruhlíðará með góðri sjóbleikjuveiði og laxveiðivon á lausar stangir þó í júlí og fylgir með neðsti hluti Jöklu því svæði líka. Nokkuð er um lausar stangir seinnihluta ágúst og september og hliðarár Jöklu voru að gefa þá vel síðasta sumar eða hátt í 200 laxa þrátt fyrir litla ástundun svo það er góður kostur líka.
Hrútafjarðará er með nokkur laus holl sem öll eru tveggja daga og ekki alltaf sem veiðimenn komast að í þessa gjöfulu þriggja stanga laxveiðiá!
Minnivallalækur er alltaf vinsæll og nú er júní og júlí þegar fullbókaður en laust um vorið og í ágúst og september. Góður valkostur með frábæru veiðihúsi alveg á árbakkanum!